Verum viðbúin á auðlesnu máli

Nú er bæklingurinn Verum viðbúin til á auðlesnu máli.

Verum viðbúin:

Það þýðir: Verum tilbúin.

Bæklingurinn segir frá hamförum.

Hamfarir:

Það þýðir: Mjög hættulegir atburðir.

Til dæmis:

  • eldgos

  • flóð

  • stormur.

Almanna·varnir hjálpa fólki í hamförum.

Hvað stendur í bæklingnum?

Bæklingurinn hjálpar þér að undirbúa þig.

Til dæmis þegar:

  • rafmagnið virkar ekki

  • þú kemst ekki út úr húsinu í nokkra daga

  • þú þarft að fara að heiman.

Í bæklingnum lærir þú meðal annars:

  • að finna réttar upplýsingar

  • að undirbúa heimilið

  • að gera áætlun

  • að gera eins og stjórnvöld segja

  • að hjálpa fólki með meiri stuðningsþarfir

  • að hjálpa börnum

  • að hugsa um líðan þína

  • að hjálpast að.

Í bæklingnum er líka listi yfir birgðir.

Birgðir:

Það þýðir: Matur og vatn og aðrir hlutir á heimilinu.

Birgðirnar eiga að duga í minnst 3 daga.

Af hverju auðlesið mál?

Auðlesið mál er auðvelt að lesa og skilja.

Allir eiga rétt á að skilja upplýsingar.

Upplýsingar um öryggi eru mjög mikilvægar.

Auðlesið vann bæklinginn með Almanna·vörnum.

Lestu bæklinginn

Þú getur lesið bæklinginn hér:

Verum viðbúin á auðlesnu máli (PDF)