Handbók um auðlesið mál

Handbók um auðlesið mál

Handbók um auðlesið mál

Útgefandi: Miðstöð um auðlesið mál, 2025

5.1 Hugið að gerð og framvindu textans

Þýðendur fást við orð og setningar, bæta við skýringum, skilgreiningum og dæmum. Við það bætist að þegar flóknum setningagerðum er útrýmt verður að nýta aðrar leiðir til að koma röklegri skipan textans til skila.

Það er því mikilvægt að gæta þess að formgerð og framgangur textans skili sér í auðlesnum texta. Það þarf því að skipuleggja vel hvernig upplýsingar skulu settar fram:

·      Hvað er það sem á að segja?

·      Hver er grunnhugmyndin í textanum?

·      Hvernig skiptist textinn í kafla og hluta?

·      Hvernig tengjast setningar og fullyrðingar innbyrðis?

·      Hvert leiðir þráður textans og hvað eru skýringar, skilgreiningar og dæmi?

Nota má leturfræði, stikkorð, yfirskriftir, millifyrirsagnir, endurtekningar, kassa og myndlýsingar til að miðla þessu öllu.

5.2 Val á upplýsingum fer eftir eðli og viðfangsefni textans

Þýðendur auðlesinna texta eru ávallt í þeirri klípu að þurfa að meta hvað teljast „mikilvægar“ upplýsingar. Þeir eru hliðverðir fyrir lesendur auðlesinna texta: Lesendurnir fá ekki þær upplýsingar sem þýðendur meta ekki mikilvægar. Á hinn bóginn er engum greiði gerður ef auðlesinn texti er fjórum sinnum lengri en frumtextinn þar sem ótal orð eru útskýrð og textinn brotinn um eftir reglum auðlesins máls (letur í 120% stærð, 1,5 línubil, hver málsgrein í sinni línu, skýringarmyndir o.s.frv).

Hér er aðeins hægt að gefa þá þumalputtareglu að val á upplýsingum sé samningsatriði milli þýðanda textans og þess sem leggur til frumtextann. Grunnskilaboð textans þurfa að liggja fyrir áður en þýðing hefst.

Markmiðið með auðlesnum textum er að gera sem mest af upplýsingum aðgengilegar. Til lengri tíma litið ættu lesendur að geta sótt sér ítarlegar upplýsingar um sem flest. Það vinnur gegn þessu markmiði að segja: „mínir lesendur þurfa ekki að vita þetta“. 

Ein leið til þess að þyngja auðlesna texta ekki um of er að skipta þeim upp. Sé hluti textans þess eðlis að hann mun aðeins gagnast hluta lesenda er mögulegt að hafa hann sér, sérstaklega ef um er að ræða texta sem gerðir eru aðgengilegir á netinu. Þeir sem hafa þörf fyrir eða áhuga á þeim texta geta þá lesið hann sérstaklega.

5.3 Notið sömu orð yfir sömu fyrirbæri, hugtök og gjörðir

Það er auðveldara að lesa texta þegar sömu orðin hafa ávallt sömu merkingu og sömu fyrirbæri hafa ávallt sama nafn. Sem dæmi, ef verið er að skrifa um lyf skal ekki nota bæði orðin „pilla“ og „tafla“ heldur aðeins annað hvort. Þá er ljóst að átt er við einn og sama hlutinn og orðið leiðir lesandann í gegnum textann. Gallinn við þetta er sá að það getur lengt textann til muna. Takið eftir því í eftirfarandi dæmi hvernig það að vísa til sömu stúlku með ólíkum hætti veitir lesandanum ýmiss konar upplýsingar með knöppum hætti:

a)        Hin 17 ára Guðbjörg Eysteinsdóttir úr Bláskógabyggð á sér óvenjulegt áhugamál. Með skóflu og málmleitartæki í farteskinu leitar hún að fornum og fyrndum munum. Það gengur heldur betur vel því í fyrradag fann Gugga, eins og hún er kölluð, lykkju og lítinn tein úr málmi sem taldir eru vera frá 16. öld. Þessi ungi Laugvetningur segir það gefa henni ólýsanlega tilfinningu að uppgötva glataða muni sem ekkert jafnast á við. „Nema kannski það að skora sigurmarkið,“ segir menntaskólaneminn og knattspyrnukonan, sem leikur með UMF Selfossi milli þess sem hún mundar málmleitartækið og stundar nám á Laugarvatni.

Hér er vissulega fullmikið af hinu góða en þó sést vel hvernig upplýsingum er dreift um textann. Þetta gengi ekki á auðlesnu máli. Þar þyrfti að koma þessum upplýsingum að í sjálfstæðum málsgreinum. Textinn myndi lengjast til muna með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á læsileika. Hér þarf því að feta einhvern milliveg. Reglan um að hlutir skuli ávallt vera nefndir sama nafni gildir engu að síður, þrátt fyrir þennan galla.

Sú regla gildir þar að auki um allar tegundir orða. Það skal ekki bara forðast samheiti fyrir nafnorð heldur einnig sagnorð, lýsingarorð og sérstaklega samtengingar. Samtengingar binda setningar saman. Í kafla 4.5 um aukasetningar má sjá hvaða samtengingar skal nota. Rétt eins og það skal ekki segja bæði „pilla“ og „tafla“ skal ekki segja „þess vegna“ og „fyrir vikið.“

5.4 Notkun persónufornafna

Notkun persónufornafna í auðlesnum textum er nokkuð frábrugðin því sem almennt tíðkast. Fyrsta og önnur persóna eru algengari þar sem notkun þeirra eykur skýrleika og færir textann nær talmáli. Þriðja persónan getur aftur á móti flækst fyrir þar sem það er ekki alltaf ljóst hvers vísað er til.  Auk þess felur notkun hennar óhjákvæmilega í sér að vísað er til sama fyrirbæris með ólíkum orðum. Hér verður stuttlega farið yfir notkun persónufornafna í auðlesnum textum.

5.4.1 Fyrsta og önnur persóna

Lítil sem engin vandkvæði fylgja notkun persónufornafna í þessum flokki. „Ég“ eða „við“ vísar til þess þess sem mælir í textanum eða þess hóps, stofnunar, fyrirtækis o.s.frv. sem mælandinn tilheyrir eða talar fyrir. „Þú“ eða „þið“ vísar til þess sem er ávarpaður í textanum sem í auðlesnu samhengi er ávallt lesandinn eða sá hópur sem lesandinn tilheyrir. Stundum kemur fyrir að mælandi og hinn ávarpaði tilheyra sama hópnum, sjá dæmi b) hér að neðan. Í langflestum tilvikum er tilvísunin skýr. Af því leiðir að nota má fyrstu og annarrar persónu fornöfn í auðlesnum textum. Auð auki eru þau vel til þess fallin að leysa úr öðrum flækjum:

·      Óbein ræða skrifuð sem bein ræða. Það leiðir oft til notkunar fyrstu og annarrar persónu fornafna:

a)        Lísa sagði að hún væri veik.
Auðlesið: Lísa sagði:
„Ég er veik.“

·      Ópersónulegri framsetningu breytt til þess að draga fram leikendur og gerendur:

b)        Í dag verður ný stjórn kosin.
Auðlesið: Í dag kjósum við nýja stjórn.

c)        Til þess að fá styrk þarf að senda inn umsókn.
Auðlesið: Viltu þú fá styrk?
Þá þarft þú að senda inn umsókn.

5.4.2 Þriðja persóna

Fornöfn í þriðju persónu vísa jafnan til umfjöllunarefnisins eða eins eða fleiri þriðju aðila. Þetta getur ljóslega verið lesendum til vandræða:

a)        Kennararnir gáfu börnunum verðlaun því þeim gekk svo vel.

Til hvers vísar „þeim“ í þessari setningu? Fyrst þarf að leysa úr „þeim“ en það getur bæði verið þriðja persóna fleirtölu í karlkyni og þágufalli og þriðja persóna fleirtölu í hvorugkyni og þágufalli. „Þeim“ getur því bæði vísað til kennaranna og barnanna. En hvort er það? Málfræðin veitir ekkert svar í þessu tilfelli. Vanir lesendur lesa svarið úr samhenginu. Þeir vita nægjanlega mikið um heiminn og skilja hvernig ferlum, gjörðum og atburðum vindur vanalega fram að fyrir vikið eru þeir ekki í neinum vafa um hver fékk verðlaunin.

Auðlesnir textar eru hins vegar miðaðir að hópi sem hefur mun takmarkaðri reynslu í farteskinu og les ekki eins vel úr aðstæðum, skilyrðum og samhengi. Því verður að gera ráð fyrir að sá hópur eigi ekki eins auðvelt með að bera kennsl á viðeigandi tengingar. Því tæknilegri og ritmálslegri sem textinn er því meira áberandi verður þetta.

Í ofanálag veldur notkun þriðju persónu fornafna því að vísað er til sama fólks eða efnis með ólíkum hætti, ýmist beint eða með fornafni. Það gengur í berhögg við bannið gegn samheitum.

Eina raunhæfa lausnin er því að sleppa fornöfnum í þriðju persónu alfarið með einni undantekningu þó.

5.4.3 Hið merkingarlausa það

Skoðið hvernig „það“ er notað í eftirfarandi dæmum:

a)        Faðirinn keypti ís handa barninu. Það gladdist mjög.

b)        Líttu út um gluggann! Það snjóar!

Í dæmi a) er „það“ frumlag sem vísar til undanfarins nafnorðs („barninu“). Í dæmi b) er engu slíku fyrir að fara. „Það“ er í þessu tilfelli merkingarlaust gervifrumlag og vísar ekki til neins nafnorðs sem fór á undan. Ástæða þess að ekki skal nota þriðju persónu fornöfn er sú að það erfitt að ákvarða til hvers þau vísa. Merkingarlaust „það“ vísar ekki til neins og skapar því enga erfiðleika. Þar að auki getur verið mjög snúið að komast hjá því að nota merkingarlaust „það“:

c)        Það rignir.

d)        Rigning fellur.

Það er vafasamt að d) sé skiljanlegra en c). Því má nota merkingarlaust „það“ í tilfellum þar sem eina leiðin til að komast hjá því er flókin og/eða ónáttúruleg.

5.4.4 Persónufornöfnum í þriðju persónu skal skipt út fyrir þau nafnorð sem þau vísa til

a)        Kennararnir gáfu börnunum verðlaun því þeim gekk svo vel.

b)        Auðlesið: Börnunum gekk vel.

Þess vegna gáfu kennararnir börnunum verðlaun.

5.4.5 Setningum um ræðu, hugsun eða þekkingu skal breytt í beina ræðu

Reglurnar hér á undan dekka stærstan hluta persónufornafnanotkunar. Þó eru tilfelli þar sem þær virka ekki:

a)        Pétur sagði í símann að hann væri veikur.

b)        Margir forstjórar eiga svo mikla peninga að þeir vita ekki hvað þeir eiga að nota þá í.

Í þessum dæmum er greint frá því hvað fólk segir, hugsar eða veit. Ef persónufornöfnunum er skipt úr fyrir þau nafnorð sem þau vísa til er útkoman þessi:

c)        Pétur sagði í símann: 

„Pétur er veikur.“

d)        Margir forstjórar eiga mjög mikla peninga. 

Sumir af þessum forstjórum vita ekki:

Hvað eiga forstjórar að nota peningana í?

Hér lítur út fyrir að það sé annar Pétur veikur en sá sem talar og að aðrir en þeir sem eiga peningana eigi að eyða þeim. Það má komast hjá þessu með því að nota beina ræðu og/eða fyrstu persónu:

e)        Pétur sagði í símann:

„Ég er veikur.“

f)           Margir forstjórar eiga mjög mikla peninga. 

Sumir af þessum forstjórum vita ekki:

„Hvað á ég nota peningana mína í?“

5.4.6 Eignarfornöfn

Eignarfornöfnin „minn“, „þinn“ og „sinn“ má nota í auðlesnum textum:

a)        Húsið mitt er blátt.

b)        Lyklarnir þínir eru á hillunni.

c)        Þorbjörg situr hjá pabba sínum.

Eignarföll eintölu þriðju persónu fornafnanna “hann“, “hún“, “það“ og eignarfall fyrstu, annarrar og þriðju persónu fleirtölu, “okkar“, “ykkar“, “þeirra“, eru líka notuð sem eignarfornöfn. Fyrsta og önnur persóna valda engum vandræðum:

d)        Húsið okkar er blátt

e)        Lyklarnir ykkar eru á hillunni.

Öðru máli gegnir um eignarfall þriðju persónu hvort sem um er að ræða eintölu eða fleirtölu:

f)           Guðrún rétti mér lyklana hennar.

g)         Þorbjörg situr hjá pabba þeirra.

Í f) er í fyrsta lagi óljóst hvort lyklarnir tilheyra Guðrúnu eða einhverri annarri. Séu lyklarnir Guðrúnar má taka allan vafa af með því að nota „sinn“ í staðinn. Tilheyri lyklarnir einhverri annarri er vísunin óljós og nota ætti nafnið í staðinn. Þá má nota eignarfall 3. persónu eintölu með:

h)        Auðlesið: Guðrún rétti mér lyklana hennar Sigrúnar.

Út frá samhengi textans mætti þó sennilega finna betri lausn í fleiri setningum og losna við eignarfallsrununa.

Dæmi g) er sömu annmörkum háð hvað varðar óljósa vísun og nauðsynlegt er að taka fram pabba hvers Þorbjörg situr hjá:

i)            Auðlesið: Þorbjörg situr hjá pabba Rúnars og Friðriku.

5.5 Setjið lykilhugtök á spássíu eða í millifyrirsagnir

Millifyrirsagnir gefa textanum form og auðvelda fólki að finna þær upplýsingar sem það leitar að. Með því að setja lykilhugtök á spássíu er einnig hægt að leiða lesandann í gegnum textann.

5.6 Látið skýringar fylgja lesátt

Auðlesnir textar innihalda margar vísanir. Það á við bæði innan textans þar sem skýringar koma fyrir og utan hans ef orðalisti fylgir. Mikilvægt er að útskýringar og skilgreiningar séu vel aðgreindar og að þær fylgi lesátt textans:

a)        Á Íslandi er fjölmenning.

Það þýðir:

Á Íslandi býr fólk frá mörgum löndum.

Þessi lönd hafa ólíka menningu.

Fólk kemur með sína menningu til Íslands.

Á Íslandi er ólík menning á sama stað.

Í dæmi a) kemur orðið fyrir fyrst og skýringin fylgir strax í kjölfarið. Í auðlesnum textum er þessu stundum snúið við:

b)        Guðríður lenti í slysi.

Þess vegna getur Guðríður ekki unnið.

Nú fær Guðríður stuðning til að geta unnið.

Það heitir: starfs·endurhæfing.

Þessi framsetning getur reynst mörgum óvönum lesendum ruglingsleg og leita þeir skýringar á hugtakinu í textanum sem kemur á eftir. Upplýsingarnar eru til staðar en til að finna þær þarf að fara til baka í textanum. Þetta fer gegn væntingum okkar um að lesa texta frá vinstri til hægri, ofan frá og niður. Því fer betur á að nefna fyrst hugtakið sem er flókið og skýra það svo beint í kjölfarið:

c)        Guðríður lenti í slysi.

Þess vegna getur Guðríður ekki unnið.

Nú er Guðríður í starfs·endurhæfingu.

Það þýðir:

                  Guðríður fær stuðning til að geta unnið.

5.7 Það má breyta textanum. Munið að brúa bilið

Texti sem þýddur er á auðlesið mál kemur ekki í stað frumtextans heldur er hann viðbót og valmöguleiki. Auðlesnir textar eru oft lesnir samhliða frumtextum og fyrir suma lesendur er sá auðlesni aðeins hjálpargagn fyrir frumtextann. Þetta er einungis mögulegt ef textarnir eru í grófum dráttum settir upp á sama hátt. Þannig veitir auðlesni textinn ákveðnum hópi aðgang að frumtextanum. Séu textarnir mjög ólíkir er ekki eins auðvelt að nýta sér þá samtímis með þessum hætti.

Að því sögðu þá hefur þýðandinn leyfi til að grípa inn í textann. Til að mynda er hægt að taka mikilvægustu upplýsingarnar saman í upphafi textans og fylgja svo frumtextanum að stærstu leyti og innan efnisgreina er sjálfsagt mál að endurraða upplýsingum.

5.8 Einkenni ólíkra texta

Textar eru ýmiss konar: fréttir, opinber skjöl, námsbækur o.s.frv. Ákveðnar gerðir texta hafa tiltekin einkenni, hlutverk, málfar og jafnvel útlit. Þessar ólíku gerðir texta hafa orðið til í menningarlegu og samfélagslegu samhengi sem vanir lesendur bera skynbragð á. Þeir hafa ólíkar væntingar til textans eftir því hvers eðlis hann er, til dæmis varðandi hvaða upplýsingar textinn veitir og hvernig þær eru settar fram.

Þegar texti er þýddur á auðlesið mál þarf að huga að því hvort eitthvað breytist í þýðingunni. Notfærir frumtextinn sér væntingar lesenda með óbeinum hætti? Byggir hann beint eða óbeint á öðrum textum sömu gerðar sem ekki eru til á auðlesnu máli og hvaða áhrif hefur það á hvernig hann birtist lesendum? Þýðandi verður að átta sig á þessu og kanna hvort hægt er að yfirfæra einkenni frumtextans á þann auðlesna eða hvort finna verði aðrar lausnir.  

Hér er sérstaklega mikilvægt að tryggja að hlutverk og virkni textans haldi sér. Auðlesnir textar eru oft fyrst og fremst til upplýsinga. Þetta getur verið sérstaklega snúið þegar auglýsingaefni er þýtt. Hversu vel virka sniðug, gamansöm eða kaldhæðin boð þegar þau eru sett fram með beinskeyttum hætti? Hvað verður almennt um óbein boð sem felast í mörgum slíkum textum?

Og hvað með aðra texta? Er lagalega bindandi texti enn lagalega bindandi á auðlesnu máli? Að hvaða leyti er notkun kennslubókar á auðlesnu máli frábrugðin notkun kennslubókar á venjulegu máli? Þýðendur verða að svara þessum spurningum eða fá svör við þeim ef textinn sem þeir skapa á að virka sem skyldi.

5.9 Fyrirvari fyrir þýðingar á lagalega bindandi textum

Svarið við einni af þessum spurningum liggur þegar fyrir: Nei. Auðlesnar þýðingar eru ekki lagalegir textar. Það þýðir að þeir eru ekki lagalega bindandi, það er ekki hægt að framfylgja þeim og það er ekki hægt að byggja kröfur á þeim. Auðlesin útgáfa veitir einungis upplýsingar um lagalega bindandi texta.

Veröld laganna er veröld sérþekkingar þar sem sérfræðingar eiga hver við annan. Tungumálið sem þeir nota er í senn hárnákvæmt og óhlutbundið en oft og tíðum óskiljanlegt utanaðkomandi. Þetta er ekkert einsdæmi og á við á öðrum sviðum líka þar sem tjáningarmáti sérfræðinga hefur tiltekna formgerð og hlutverk sem gerir þeim kleift að ræða flókin mál á skilvirkan máta. 

Markmið auðlesinna texta er að skapa skiljanleika á þessum sviðum þar sem fólk á rétt á að skilja það sem á sér stað, til dæmis hvað varðar þeirra persónulegu hagi eða hvers er krafist af þeim. Eins og áður segir koma auðlesnir textar þó ekki í stað frumtexta heldur eiga þeir að gera sérfræðitexta aðgengilega og miðla mikilvægustu upplýsingunum. 

Þess vegna eru auðlesnir textar ekki lagalega bindandi og standa ekki einir og sér. Þetta verður að gera lesendum ljóst á gagnsæjan hátt. Hér er dæmi um fyrirvara sem þjónar því hlutverki:

a)        Þessi auðlesni texti er til að gefa þér upplýsingar.

Þessi auðlesni texti er viðbót við lögin og reglurnar.

Textinn sem gildir eru lögin.

Þessi auðlesni texti er ekki lagalega bindandi.

                  Það þýðir:

                  Þú getur ekki notað þennan auðlesna texta til að krefjast bóta.

Við þetta má jafnvel bæta eftirfarandi:

Stundum misskiljum við texta.

Stundum þurfum við aðstoð til að skilja texta.
Þú getur kannski fengið aðstoð frá einhverjum sem þú treystir.

Efnisyfirlit

Efnisyfirlit

Sækja handbókina

Nálgastu alla handbókina á PDF-formi.

Sækja handbókina

Nálgastu alla handbókina á PDF-formi.

Sækja handbókina

Nálgastu alla handbókina á PDF-formi.